Hópur Öðlinga verður á ferð í Kringlunni milli kl. 16-18 í dag og kynnir þar átaksverkefni gegn kynbundnu ofbeldi. Öðlingurinn 2010 er fræðslu- og styrktarátak sem sameinar einstaklinga af báðum kynjum en í fararbroddi fyrst um sinn eru nokkrir velþekktir og afar frambærilegir karlmenn.
Átakið hófst á bóndadag 2010 (22. janúar) þegar valinn hópur karlmanna fékk boð um að leggja átakinu lið og safna fé til styrktar Neyðarmóttöku vegna nauðgana. Á konudaginn 2010 (þann 20. febrúar) mun kyndillinn færast frá bónda til konu; þegar kvenkyns öðlingar taka við átakinu úr höndum öðlings karla og halda baráttunni áfram.
Mikilvægasta vopnið í baráttunni er fræðsla til almennings. Öðlingarnir hvetja fólk til að kaupa bókina Á mannamáli eftir Þórdísi Elvu Þorvaldsdóttur í gegnum heimasíðu verkefnisins. Kaupendum er í sjálfsvald sett hversu hátt verð þeir greiða fyrir bókina, en það renna aldrei minna en 1000 krónur af hverri bók til Neyðarmóttökunnar.
Neyðarmóttakan hefur ekki sloppið við niðurskurð og breytingar fremur en önnur starfsemi innan LSH á undanförnum árum. Nauðsynlegt er að slá áfram skjaldborg um Neyðarmóttökuna og setja velferð brotaþola í kynferðisbrotamálum í forgang.
Öðlingar ársins eru Rúnar Kristinsson knattspyrnustjóri, Karl Sigurðsson tölvunarfræðingur og Baggalútur, Höskuldur Sæmundsson leikari, Atli Fannar Bjarkason blaðamaður, Snorri Ásmundsson myndlistarmaður, Sturla Sighvatsson framkvæmdastjóri, Lárus R. Haraldsson verkefnisstjóri og Víðir Guðmundsson leikari.
Sjá nánar á odlingurinn.is