Í dag kemur út bókin Nýttu kraftinn –hugmyndir, ráð og hvatning fyrir atvinnuleitendurog alla þá sem leita sér að nýjum tækifærum eftir þær Sigríði Snævarr og Maríu Björk Óskarsdóttur. Í bókinni er bent á fjölmargar leiðir við atvinnuleitina og farið ítarlega í ráðningarferlið, meðal annars með sjálfskoðun , styrkleikaæfingum, gerð ferilskrár og kynningarbréfa, sem og æfingum og ábendingum fyrir atvinnuviðtöl.
Útgáfuboð í dag kl. 17 í Eymundsson Austurstræti – allir velkomnir!
Höfundarnir, Sigríður og María, eru tvíeykið á bak við námskeiðin Nýttu kraftinn sem starfrækt hafa verið frá árinu 2008. Námskeiðin eru ætluð til stuðnings og hvatningar fyrir fólk í atvinnuleit og nú, fjórum árum síðar, hafa nálægt 1.000 manns setið námskeiðið. Þessa bók byggja þær á reynslu sinni og eigin aðferðafræði sem hefur gagnast þátttakendum vel við að skapa sér forskot og ný tækifæri.