Í dag kemur út annað hefti Tímarits Máls og menningar árið 2014. Blaðið er að vanda stútfullt af efni sem Guðmundur Andri, ritstjóri TMM, hefur haft yfirumsjón með.
Nýjasta hefti TMM er að miklu leyti helgað Guðmundi Páli Ólafssyni rithöfundi og náttúrufræðingi. Andri Snær Magnason rithöfundur skrifar um baráttumanninn , Skúli Skúlason líffræðingur skrifar um náttúrufræðinginn, Unnur Birna Karlsdóttir sagnfræðingur skrifar um náttúruverndarann, Einar Falur Ingólfsson skrifar um ljósmyndarann og Guðmundur Andri Thorsson samverkamaður Guðmundar skrifar um rithöfundinn.
Meðal annars efnis má nefna hugleiðingu Arthúrs Björgvins Bollasonar um náttúrufegurð frá heimspekilegu sjónarhorni, Reynir Axelsson skrifar um Wagner og gyðingaandúð, Sigríður Dúna Kristmundsdóttir minnist Nelsons Mandela og Jón Yngvi Jóhannsson skrifar um skáldsögur síðasta árs.
Auk þess eru sögur og ljóð eftir ýmsa höfunda, dómar um bækur og ádrepur.
Hausthefti Tímarits Máls og menningar er í fullri vinnslu en það verður stútfullt af efni upprennandi höfunda.