Nýtt leikrit Steinars Braga

Útvarpsleikhúsið á Rás 1 frumflytur nýtt íslenskt leikrit á sunnudaginn kemur kl. 14.  Leikritið heitir Sagan af þriðjudegi og er eftir rithöfundinn Steinar Braga. Verkið er í leikgerð Bjarna Jónsson og er áður óbirt saga eftir Steinar Braga, en þetta er í fyrsta skipti sem verk eftir hann er flutt í leikritsformi.

Leikritið fjallar um mann sem kemur inn á öldurhús á þriðjudegi og hittir þar fyrir skuggalegan náunga. Fyrr en varir er hann tekinn til við að rekja raunir sínar fyrir þessum ókunna manni með afdrifaríkum afleiðingum.

Leikendur í uppfærslu Útvarpsleikhússins eru Sigurður Skúlason, Þröstur Leó Gunnarsson, Kristján Franklín Magnús, Hjálmar Hjálmarsson og Valur Freyr Einarsson en tónlistin er frumsamin eftir Hall Ingólfsson.

INNskráning

Nýskráning