Nýtt leikrit eftir Braga Ólafsson

Morgunblaðið segir frá því í dag (09.01.2013) að Þjóðleikhúsið hafi fest kaup á nýju leikriti eftir Braga Ólafsson og stjórnendur þar á bæ hafi í hyggju að frumsýna það í haust.

Skemmst er að minnast þess að síðasta leikrit Braga, Hænuungarnir, gekk tvö fyrir fullu húsi í tvö leikár í Kassanum (frá ársbyrjun 2010) og er ógleymanlegt öllum sem það sáu, svo fyndið og hárbeitt var það.

Nýja leikritið hefur enn ekki fengið nafn og ekki mun enn hafa verið ákveðið hver stýrir því en nafn Stefáns Jónssonar, leikstjóra Hænuunganna, hefur verið nefnt og einnig getur blaðið sér þess til að Eggert Þorleifsson verði meðal leikenda. Hann var alveg óborganlegur í hlutverki Sigurhans vínilplötusafnara í Hænuungunum og ekki hefur neinum tekist að gleyma honum í hlutverki gömlu konunnar í Belgísku Kongó eftir Braga sem sýnt var lengi í Borgarleikhúsinu (frá 2004).

INNskráning

Nýskráning