Fimbulkaldur bókakápa

Fimbulköld spennusaga

Skáldsagan Fimbulkaldur kemur í bókabúðir í dag. Hörkutólið Jack Reacher snýr aftur í nístingssvalri spennusögu eftir Lee Child. Karlmennið Reahcer er að þessu sinni staddur í dularfullum smábæ um hávetur þar sem hann lendir í ægilegri atburðarrás. Nú fyrst reynir verulega á útsjónarsemi og greiningarhæfni Reachers. Og svo er honum líka fjandi kalt.

Bækur metsöluhöfundarins Lee Child um einfarann Jack Reacher hafa slegið í gegn hjá íslenskum spennufíklum. Áður hafa spennusögurnar Í frjálsu falli og Friðlaus komið út á íslensku.


„Í anda Philips Marlowe með smávegis frá Rambó og Bruce Willis… Reacher er … karlmannleg andhetja sem gnæfir yfir alla aðra.“

Independent

 

****

„Jack Reacher er töffari af guðs náð.“
Steinþór Guðbjartsson / Morgunblaðið  (um Friðlaus)



INNskráning

Nýskráning