Íslensk-spænsk orðabók hefur nú verið gerð aðgengileg á vefnum snara.is. Þar má fletta upp um 27.000 uppflettiorðum sem hafa að geyma fjölda skýringa, orðasambanda, máldæma og greinargóðar málfræðiupplýsingar. Orðabókin kom út síðla hausts 2011 og var unnin í samstarfi Háskólans í Reykjavík og Forlagsins.
Ritstjórar voru Guðrún H. Tulinius, Margrét Jónsdóttir, Sigrún Á. Eiríksdóttir, Teodoro Manrique Antón og Viola Miglio. Á vefnum snara.is má nú leita í vel á þriðja tug orðabóka og uppflettirita og Íslensk-spænsk orðabók er mikilvæg viðbót í það safn. Spænska er móðurmál um 360 milljóna manna um allan heim. Hún er eitt útbreiddasta tungumál veraldar og hefur á síðari árum notið sívaxandi vinsælda í íslenskum skólum.