Hvað er í handtöskunni þinni? Veski, varalitur, tyggjó … eða lesefni til þess að stytta þér stundir? Nú hefur Forlagið tekið við rekstri bókaklúbbsins Handtöskuseríunnar sem sér áskrifendum sínum fyrir gæðabókum sem á frábærum kjörum. Handtöskuserían er ritröð þýddra skáldsagna en markmið hennar er að gera nýjar og nýlegar, erlendar skáldsögur eftir konur aðgengilegar lesendum á íslensku, klúbburinn sendir félögum sínum fjórar bækur á ári. Smelltu hér til að gerast áskrifandi!
Áskrifendur eiga von á sendingu allra næstu daga. Skáldsagan Morgnar í Jenín er áhrifamikil fjölskyldusaga sem segir frá lífi þriggja kynslóða fólks frá Palestínu – einlæg og mannleg frásögn sem oft hefur verið líkt við Flugdrekahlauparann.