Gleðileikurinn Dante

Ný útgáfa Gleðileiksins!

Gleðileikurinn guðdómlegi eftir ítalska skáldið Dante Alighieri  var saminn á árunum 1307–1320 og hefur æ síðan verið eitt vinsælasta, virtasta og áhrifamesta bókmenntaverk í hinum vestræna heimi. Nú kemur Gleðileikurinn í fyrsta sinn út í heild á íslensku í meistaralegri lausamálsþýðingu Erlings E. Halldórssonar sem er löngu landskunnur fyrir þýðingar sínar. Í kvæðinu segir Dante frá ferð sinni um handanheima, víti, hreinsunareld og paradís, í fylgd rómverska skáldsins Virgils og sinnar ástkæru Beatrísar. Hann lýsir í auðugu máli og af djúpri samúð örlögum ótal manna sem hann hittir á leið sinni og fléttar listilega saman forna tíma og samtíma sinn. Erlingur ritar einnig formála að verkinu. Bókin er rúmlega 500 síður og prýða hana myndir eftir Gustave Doré. Hún kemur út í vikunni.

INNskráning

Nýskráning