Hinir réttlátu

Ný spennusaga eftir Sólveigu Pálsdóttur kemur út í dag

Spennusagnafíklar geta farið að láta sig hlakka til því í dag kemur út bókin Hinir réttlátu eftir Sólveigu Pálsdóttur. Kunnur athafnamaður á miðjum aldri finnst myrtur á golfvelli á Suðurlandi. Sama dag hefst æsileg atburðarás í Reykjavík. Sprenging verður í hvalveiðiskipi sem liggur í höfninni og hópur ungmenna stendur fyrir mótmælum við veitingahús sem hafa hvalkjöt á matseðlinum.

Fyrsta skáldsaga Sólveigar, Leikarinn, kom út síðastliðið vor og hlaut afar lofsamlega dóma. Þegar hefur verið samið um útgáfurétt Leikarans í Þýskalandi og búið er að selja kvikmyndaréttinn til Íslenska kvikmyndafélagsins.

Útgáfuhóf bókarinnar verður haldið 2. maí í Eymundsson Austurstræti kl.17.00. Allir velkomnir!

INNskráning

Nýskráning