Björg Magnúsdóttir, sem lesendur mbl.is og Pressunnar þekkja fyrir skemmtilega pistla, hefur lagt lokahönd á skáldsögu sem var dreift í verslanir í dag (29.05.13). Sagan ber titilinn Ekki þessi týpa og segir frá fjórum skemmtilegum konum og reynslu þeirra af djamminu í Reykjavík. Í viðtali við Fréttablaðið játaði Björg að bókinn byggði á eigin reynslu: „Sögurnar hafa flestar gerst í alvöru. Fólkinu í kringum mig þótti það bæði spennandi og óþægilegt og ég þurfti að taka einkafundi með sumum.“
Konurnar í bókinni lenda í ýmsu í sambandi við karlmenn og fullyrðir Björg að undantekningalaust hafi sambærileg atvik hent konur sem hún þekki, eitthvað sé líltillega ýkt en annað alls ekki.
Það hefur lengi blundað í Björgu að skrifa eitthvað lengra en pistla: „Mig hefur alltaf dreymt um að skrifa bók, alveg frá því ég var mjög lítil. Sagan er búin að vera í hausnum á mér ógeðslega lengi þannig að hún rumpaðist frekar hratt út um leið og ég byrjaði að skrifa,“ segir hún. „Ég er með efni í tíu bækur í viðbót. Mig langar að gera meira með þessa karaktera og svo langar mig líka að skrifa um margt annað, en framhaldið fer algjörlega eftir viðtökunum sem þessi bók fær. Kannski fæ ég ekki að skrifa meira fyrir aðra eftir þetta.“
Útgáfupartí til að fagna útgáfu bókarinnar Ekki þessi týpa verður haldið fimmtudaginn 30. maí á skemmtistaðnum Loftið, Austurstræti 9, kl. 17.00. Reiknað er með heljarinnar partýi, plötusnúðar, uppistand, upplestur og fleira skemmtilegt og eru allir velkomnir.