Skrímsli

Ný skrímslabók væntanleg!

Allt lék á reiðiskjálfi í Forlaginu í gær þótt engir væru jarðskjálftarnir. Voru þar komin stór og lítil skrímsli alla leið frá Noregi, Frakklandi og Kína og stigu skrímsladans á borðum starfsmanna, skríkjandi af tilhlökkun að komast í hendur skapara sinna, þeirra Áslaugar Jónsdóttur, Kalle Güettler og Rakelar Helmsdal.

Bækurnar um litla skrímsli og stóra skrímsli njóta mikilla vinsælda um heim allan og það er alltaf spennandi að sjá þessa skemmtilegu vini okkar takast á við ný ævintýri. Um þessar mundir kemur út ný bók með þeim félögum, Skrímslaerjur.

INNskráning

Nýskráning