Litla skrímslið í miklum fíling

Ný skrímslabók og frábærar viðtökur í Skandinavíu

Von er á nýrri skrímslabók frá Áslaugu Jónsdóttur og félögum í vetur en bókin sú hefur fengið titilinn Skrímsli á toppnum. Bækurnar um Stóra skrímslið, Litla skrímslið og Loðna skrímslið hafa ekki aðeins skemmt lesendum á Íslandi heldur víðar um jarðir. Nú fréttist af góðum viðtökum bókarinnar Skrímsli í heimsókn hjá dönskum gagnrýnendum. Rýnir Politiken segir m.a. um þá sögu að hún fangi viðfangsefni sem sé börnum af öllum stærðum afar hugleikið og Torben Wilhelmsen hjá Dansk BiblioteksCenter segir hana afar merkilega myndabók, bæði einstaka og aðgengilega.

Svíarnir eru hins vegar langt á undan lestinni og hafa þegar rýnt í nýjustu bókina – sem ekki er komin út. Helene Ehriander hjá Bibliotestjänst þar í landi segir um Skrímsli á toppnum. „Þetta er sjötta sænsk-íslensk-færeyska myndabókin um litla skrímslið og stóra skrímslið, og eins og fyrri sögur sýnir þessi spennandi afrakstur frjórrar samvinnu, frumlegrar kímnigáfu og fágætrar hugmyndaauðgi. … Myndirnar eru listrænar og aðgengilegar og sýna sterkar tilfinningar. Þrátt fyrir að höfundarnir séu þrír er frásögnin ein og sterk, þar sem hvert smáatriði er úthugsað og fellur óaðfinnanlega að heildinni. Sögurnar um skrímslavinina tvo hafa orðið eftirlæti margra barna og það er gleðilegt að sjá að sköpun þessa hugmyndaríka höfundatríós dofnar ekki vitund heldur þróast þvert á móti áfram.“

Aðdáendur Skrímslanna eiga greinilega von á góðu.

INNskráning

Nýskráning