Jónína Leósdóttir

Ný skáldsaga Jónínu seld til Þýskalands

Ný bók eftir Jónínu Leósdóttur rithöfund er væntanleg í bókaverslanir í október. Skáldsagan Allt fínt …  en þú? er bráðfyndin saga fyrir fullorðna um grafalvarleg málefni sem geta komið upp í hvaða fjölskyldu sem er. Í vikunni var skrifað undir samning við þýska forlagið Kiepenheuer und Witsch um útgáfu bókarinnar á þýsku á næsta ári en forleggjarar þar á bæ voru yfir sig hrifnir af handritinu. Sjaldgæft er að útgáfuréttur íslenskra bóka sé seldur til útlanda áður en þær eru gefnar út í hér. Þýska forlagið er komið með þýðanda að bókinni og er stefnt að því að hún komi út í tæka tíð fyrir bókasýninguna í Frankfurt næsta haust en þar er Ísland heiðursgestur eins og kunnugt er.

INNskráning

Nýskráning