Ljósmyndabókin Volcano Island er væntanleg í verslanir á morgun, miðvikudag. Það bíða margir spenntir eftir þessari nýjustu bók ljósmyndarans Sigurgeirs Sigurjónssonar en hann er án efa vinsælasti náttúruljósmyndari okkar Íslendinga. Bækur hans hafa selst í tonnavís, þar á meðal Lost in Iceland og The Little Big Book sem kom út í fyrra. Nýjasta bókin er að sjálfsögðu helguð sögulegum diskódansi móður jarðar fyrr í vor, gosunum á Fimmvörðuhálsi og í Eyjafjallajökli. Hún verður snarpheit úr vélunum á morgun, tryggðu þér eintak.