Stóra handritið komið út á bók

Það hlýtur að teljast til nokkurra útgáfutíðinda að út komi ný bók eftir Þórberg Þórðarson! Áskrifendur í Klassíska kiljuklúbbnum munu fyrstir manna berja augum rit sem fengið hefur titilinn Meistarar og lærisveinar en bókin sú er byggð á „stóra handritinu“ hans Þórbergs  sem er að líkindum uppkast að þriðja bindi skáldævisögu hans. Verkið er skrifað seint á fjórða áratugnum í kjölfar Íslensks aðals og Ofvitans en þar tekur Þórbergur  upp þráðinn þar sem Ofvitanum sleppir og segir frá sjálfum sér allt fram til ársins 1925.

Bókinni verður dreift til áskrifenda á allra næstu dögum en er væntanleg í bókaverslanir í byrjun ágúst.

Arngrímur Vídalín bjó handritið til prentunar en Soffía Auður Birgisdóttir ritar formála.

INNskráning

Nýskráning