Hildur Knútsdóttir

Ný íslensk skáldsaga

Skáldsagan Sláttur eftir Hildi Knútsdóttur kemur í bókaverslanir landsmanna í dag. Hér er á ferðinni áleitin og heillandi Reykjavíkursaga um unga stúlku sem fengið hefur nýtt hjarta en hún er sannfærð um að ýmislegt undarlegt hafi fylgt því. Stundum veit stúlkan ekki hvað tilheyrir henni sjálfri og hvað hún fékk með hjartanu. Útgáfunni verður fagnað í Eymundsson á Skólavörðustíg  fimmtudaginn 5. maí kl. 17.30. Verið velkomin!


INNskráning

Nýskráning