Úlfur

Ný bók eftir Stefán Mána

Út er komin ný bók eftir Stefán Mána sem bet titilinn Úlfshjarta. Hún er spennandi og óvænt eins og höfundarins er von og vísa en ætluð víðari lesendahópi en fyrri bækur hans. Stefán Máni segir í viðtali við Fréttablaðið að hann hafi langað til að sinna hópi sem fáir íslenskir höfundar skrifa fyrir – því sem enski markaðurinn kallar Young Adult. Alþjóðlega eru þetta gríðarvinsælar bækur sem höfða jafnt til ungs fólks og fullorðinna og nægir að nefna Hungurleikana og Twilight-bókaflokkinn í því samhengi.

Í sögumiðju Úlfshjarta eru Alexander og Védís, 19 og 17 ára Reykvíkingar sem eru bæði örlítið utanveltu í lífinu – hann hættur í skólanum og hún vinalaus og einangruð. Þau hrífast hvort af öðru en áður en þau ná almennilega saman grípa örlögin í taumana svo ekkert verður eins og áður.

Stefán Máni naut leiðsagnar nokkurra unglinga við ritun sögunnar og fékk frá þeim góðar athugasemdir. Um leið fékk hann staðfestingu á því að sagan virkaði því allir lesararnir hrifust innilega af sögunni og voru til í að lesa handritið aftur og aftur.

INNskráning

Nýskráning