Í dag kemur út ný bók eftir og um Stellu Blómkvist. Það eru heil sex ár síðan það heyrðist síðast frá töffaranum sem tekst á við andstæðinga sína með spakmæli mömmu gömlu á vörunum. Enn hefur ekki komið fram hver er á bakvið höfundanafnið Stella Blómkvist, en margar skemmtilegar kenningar hafa komið upp síðustu árin. Staðfesting á þeim hefur aftur á móti ekki fengist.
Nýja bókin ber titilinn Morðið á Bessastöðum, og er það sjöunda bókin um og eftir Stellu. Í bókinni tekst Stella á við ólík verkefni. Hún verður við ósk deyjandi manns að finna barn sem hann fékk aldrei að hitta, hún flækist inn í nektardansheiminn og mögulegt mansal, hún þræðir krókaleiðir valdakerfisins til komast til botns í morðmáli á Bessastöðum og hún kannar litháískan dóphring á Íslandi. Þess á milli sinnir hún verkefnum einstæðrar móður, daðrar við bæði kynin og slettir í sig viský.