„Rithöfundur gleymir því aldrei þegar hann fékk í fyrsta sinn peninga eða hrós fyrir sögu sem hann skrifaði. Hann gleymir aldrei þegar hann fann ljúft eitur sjálfumgleðinnar streyma um æðarnar í fyrsta sinn … Rithöfundur gleymir ekki þessari stund af því að upp frá því er hann glataður og sál hans hefur verið metin til fjár.“
David er lægst settur allra blaðamannanna á dagblaðinu La Voz de la Industria í Barcelona árið 1917. En kvöld eitt fær hann óvænt tækifæri og semur smásögu fyrir helgarblaðið sem slær í gegn. Hann er orðinn þekktur fyrir bókaflokk um leyndardóma borgarinnar þegar dularfullur franskur út-gefandi hefur samband við hann og vill panta hjá honum ritverk. En útgefandinn er ekki allur þar sem hann er séður og brátt er David í miklum vanda staddur.
Leikur engilsins er saga um bækur, ófyrirsjáanleg áhrif þeirra og anda, eins og fyrri skáldsaga Zafóns, Skuggi vindsins, sem sigraði heiminn fyrir fáum árum. Ógleymanleg saga um yfirnáttúrulega atburði, hamslausar ástríður, hús í álög-um, öngstræti og myrka króka og kima hinnar fögru Barcelonaborgar.
Skáldsagan Skuggi vindsins eftir Carlos Ruiz Zafón fór sigurför um heiminn en Leikur engilsins gefur henni ekkert eftir. Bækur Zafón hafa verið þýddar á yfir fjörutíu tungumál, hlotið fjölmörg verðlaun og viðurkenningar og sigrað hugi milljóna lesenda.
Sigrún Á. Eiríksdóttir þýddi.
„Töfrandi bók. Magnaður leynilögreglutryllir, yfirnáttúruleg hryllingssaga, töfraraunsæ goðsaga og nístingssár ástarsaga. Leikur engilsins kannar líf, dauða og trúarbrögð – og þó fyrst og fremst einmanakennd og sætbeiska kvöl þess að skrifa.“
Daily Mail