Í dag og á morgun er væntanleg í verslanir íslenskri þýðingu ný bók eftir Arne og Carlos, höfunda bókarinnar Jólakúlur sem kom út hjá Forlaginu sl. haust.
Nýja bókin heitir Litríkar lykkjur úr garðinum og í henni er heklað, prjónað og saumað út að sumarlagi.
Í bókinni bregða hönnuðirnir Arne og Carlos á leik með fjölmörg litrík og skemmtileg verkefni þar sem garðuinn þeirra veitir þeim innblástur. Blóm og fiðrildi breytast í nálapúða, hitaplatta, sessur og margskonar aðra heklaða eða prjónaða smáhluti. Hagamús, býfluga og blómabörn birtast sem prjónuð leikföng og stjúpurnar í garðinum verða fyrirmyndir að útsaumuðum búðum. Stór, dásamleg teppi, hekluð eða prjónuð úr garðafgöngum, eru algjör nauðsyn utan- sem innandyra og gleðja augað. Litríkar lykkjur úr garðinum er einstaklega lífleg og falleg bók fyrir hannyrðafólk og aðra fagurkera. Verkefnin eru fjölbreytt – bæði stór og smá – og henta byrjendum jafnt sem lengra komnum.