Ný áhrifarík spennusaga

Nína er hjúkrunarkona og vinnur fyrir Rauða krossinn í Danmörku. Hún starfar einkum við umönnun flóttamanna og hirðir þá ekki um hvort þeir eru löglegir eða ólöglegir í landinu. Hún hefur þurft að horfa upp á átakanlegt ofbeldi, misnotkun og mansal án þess að geta mikið við því gert annað en veita þá hjálp sem hún má, en þegar hún finnur lítinn dreng í ferðatösku á Aðaljárnbrautarstöðinni í Kaupmannahöfn getur hún ekki látið hann strax í hendur yfirvalda. Hún verður fyrst að komast að því hver hann er, hvaðan hann kom og hvort hann á mömmu. Það reynist lífshættuleg ákvörðun.

Barnið í ferðatöskunni eftir Lene Kaaberbøl og Agnete Friis fékk Harald Mogensen-verðlaunin sem besta danska spennusagan 2008 og var tilnefnd til Glerlykilsins 2009.


„Hárfínt spunninn söguþráður sem kemur á óvart þegar öllum lögum atburðarásarinnar hefur verið flett ofan af honum.“
Politiken

 

„Áhrifarík spennusaga með óvægnum skotum á danskt samfélag.“
Metroexpress

 

INNskráning

Nýskráning