Ný þjónusta – prentað eftir pöntun

Prentað eftir pöntun (PEP) er ný þjónusta sem Forlagið býður upp á. Bækur, sem hafa verið ófáanlegar, er nú hægt að fá sérprentaðar í litlu upplagi. Í gegnum heimasíðu Forlagins getur þú lagt inn pöntun og greitt fyrir bókina/bækurnar og fengið þær síðan sendar heim. Afgreiðslutíminn er 7-10 dagar. Athugið að ekki er hægt að skila sérprentuðum bókum.

Til að byrja með bjóðum við upp á fjóra titla af fræðslu- og kennslubókum sem hafa verið ófáanlegar lengi. Í framtíðinni munum við bjóða þessa þjónustu fyrir enn fleiri titla! Fylgist með! Sjá nánar hér.


INNskráning

Nýskráning