Tinni

Nú komast pokabuxurnar í tísku!

Belgískættaði blaðamaðurinn frækni, sjálfur Tinni, verður í aðalhlutverki í einni stærstu bíómynd þessa árs. Sú er hugarfóstur stórhvelanna í Hollywood, Spielbergs og Peters Jackson, sem báðir eru miklir aðdáendur Tinna-bókanna. Myndin verður að sjálfsögðu í þrívídd og útfærð með tilheyrandi brellutækni og bravúr. Í helstu hlutverkum verða Bondleikarinn Daniel Craig (sem hinn óviðjafnanlegi Kolbeinn kafteinn) og Jamie Bell sem leikur titilrulluna en hann töfraði alla upp úr skónum um árið í myndinni Billy Elliot. Annars rekur hvert stórstirnið annað á aðstandendalista myndarinnar. Hér getið þið smellt og séð kynningarstikluna.

Nú í vor er von á tveimur nýjum endurútgáfum Tinna bókanna, Kolafarminum og Leynivopninu.

INNskráning

Nýskráning