Nú er vettlingaveður

Út er komin Vettlingaprjón, frábær handavinnubók með 64 uppskriftum að vettlingum á kríli, krakka, konur og karla. Vettlingaprjón er þriðja hannyrðabók Guðrúnar S. Magnúsdóttur sem áður hefur gefið út Sokkaprjón (2011) og Húfuprjón (2012) sem báðar njóta mikilla vinsælda. Sem fyrr er bókin fallegt fjölskylduverkefni því sonur Guðrúnar tekur ljósmyndirnar og dóttir hennar sér um umbrotið.  Guðrún og fjölskylda hennar fagna útkomu bókarinnar á morgun, föstudaginn 20. september, kl. 17.30, í safnaðarheimili Neskirkju. Léttar veitingar verða í boði og prjónandi gleði. Verið hjartanlega velkomin.

INNskráning

Nýskráning