Strumpar

Nú er það blátt! Strumpað í Húsdýragarðinum

Aðdáendur hinna smávöxnu Strumpa fagna alþjóðlegum gleðidegi þeirra nk. laugardag, þann 25. júní. Dagurinn sá er fæðingadagur belgíska listamannsins Peyo, skapara Strumpanna.

Í tilefni dagsins munu þúsundir manna víðsvegar um heiminn gera tilraun til þess að komast á síður Heimsmetabókar Guinness og slá metið fyrir stærstu samkomu fólks í Strumpabúningum. Metið stendur nú í 2.510 þátttakendum en safnast verður saman í 12 borgum, þar á meðal í London, Moskvu, Panama, Brussel og New York.

Ennfremur verða Strumpaviðburðir haldnir um borg og bí, þar á meðal á Íslandi. Afþreyingarfyrirtækið Sena, dreifingaraðili væntanlegrar stórmyndar um Strumpana sem sýnd verður í ágúst, skipuleggur strumpandi skemmtidagskrá í Húsdýragarðinum á laugardaginn. Þar geta krakkar leita að Strumpum í garðinum og fengið bíómiða að launum, látið taka mynd af sér með risastórum Strumpi eða fengið Strumpayfirhalningu með andlitsmálun.

Þess má einnig geta að Spánverjar láta ekki sitt eftir liggja og ætla að mála þorpið Júzcar blátt í tilefni dagsins (!). Strumpar munu strumpast í kringum Effel-turninn í París, flugvöllinn í Bogotá og það verður víst algjör Strumpastemmning í Tívolíinu í Kaupmannahöfn. Sjá nánar um alheimsstrump á síðunni www.globalsmurfsday.com/.

INNskráning

Nýskráning