Um helgina hlaut Þorgrímur Þráinsson Vorvinda IBBY á Íslandi fyrir bækur sínar sem notið hafa gríðarlegra vinsælda undanfarin 25 ár. Þorgrími var einnig þakkað fyrir ötult starf sitt að lestrarhvatningu sem hann hefur stuðlað að með ýmsum hætti um langt skeið.
Vorvindaviðurkenningar IBBY hafa verið afhentar árlega frá árinu 1987 og eiga þær að vekja athygli á þeim fersku vindum sem blása í barnamenningunni hverju sinni. Aðrir sem hlutu viðurkenninguna að þessu sinni eru Linda Ólafsdóttir teiknari, sem vinnur jafnt bækur fyrir íslenska og erlenda útgefendur og myndskreytir meðal annars nýja útgáfu á sögum Kristínar Helgu Gunnarsdóttur um Móa hrekkjusvín. Þá fengu tvær bækur nýliðins árs viðurkenningu, Brosbókin og Saga um nótt.