Blóðhófnir eftir Gerði Kristnýju er önnur þeirra bóka sem Íslendingar tilnefna til Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs í ár. Þessi áhrifamikli ljóðabálkur, ortur um og í framhaldi af atburðum sem sagt er frá í eddukvæðinu Skírnismálum, kom út fyrir rúmu ári síðan og hlaut strax feikigóðar viðtökur. Fyrir bókina hlaut Gerður Kristný Íslensku bókmenntaverðlaunin fyrr á þessu ári og hefur lesið úr verkinu víða um heim, meðal annars á bókasýningunni í Frankfurt í haust. Blóðhófnir er nýkomin út í danskri þýðingu Eriks Skyum-Nielsens og hafa gagnrýnendur þar í landi lokið miklu lofsorði á ljóðið og þýðinguna. Skáldsagan Svar við bréfi Helgu eftir Bergsvein Birgisson og ellefu norræn skáldverk til viðbótar keppa við Blóðhófni um verðlaunin og tilkynnt verður í vor hver hreppir hnossið. Handhafi Bókmenntaverðlauna Norðurlandaráðs er sem kunnugt er Íslendingurinn Gyrðir Elíasson.