Smásagnasafnið Lífið að leysa eftir hina kanadísku Alice Munro er nú fáanlegt á íslensku.
Næsti Nóbelsverðlaunahafi verður ekki kynntur fyrr en í október og eftir því sem næst verður komist er þetta í fyrsta sinn sem út kemur bók á íslensku eftir Nóbelshöfund meðan hann er ennþá handhafi verðlaunanna, eða öllu heldur á Nóbelsárinu.
Munro hlaut verðlaunin fyrir smásögur sínar enda þykja þær einstök meistaraverk, knappar, afhjúpandi og spennandi. Söguhetjur hennar eru manneskjur af öllu tagi; ungar og gamlar, ríkar og fátækar, konur og karlar. Hún dregur lesandann inn í líf þeirra af listfengi og áður en hann áttar sig eru þær orðnar honum kærar og nákomnar – þó gallaðar séu eins og fólk er flest. Margar sögurnar lýsa andartaki þegar líf söguhetju breytist eða byltist og ástin er sérstaklega ágengt umfjöllunarefni.
Silja Aðalsteinsdóttir þýddi safn Munro listilega og ritar einnig eftirmála.
Þessa þungavigtarbók ættu engir bókmenntaunnendur að láta fram hjá sér fara.
Hér má hlusta á umfjöllun Jórunnar Sigurðardóttur um Alice Munro í þættinum Orð um bækur.
Hér má hlusta á viðtal Jórunnar við Silju Aðalsteinsdóttur, þýðanda Lífið að leysa.