Námskeið um Þórberg

Pétur Gunnarsson rithöfundur heldur námskeið um Þórberg Þórðarsson nú í október. Námskeiðið er haldið á vegum menningarmiðstöðvarinnar Gerðubergs og fer fram dagana 11.-13. október milli kl. 20 og 22. Yfirskrift námskeiðsins er „Þórbergur í endurnýjun lífdaga“. Við hvetjum alla áhugasama aðdáendur Þórbergs, og aðra þá er ekki hafa kynnt sér bækur þessa merka höfundar, til þess að smella sér með. Námskeiðsgjaldið er 8.000 kr. en allar nánari upplýsingar má nálgast á heimasíðu Gerðubergs.


INNskráning

Nýskráning