Mona – Charlotte – Siv

Aðalsöguhetja skáldsögunnar Krónprinsessan er ung kona, Charlotte Damgård, sem óvænt tekur við stöðu umhverfisráðherra en sagan fylgir níu mánuðum í lífi hennar. Þar er skyggnast bak við tjöldin í óvægnum heimi stjórnmálanna;  átök um völd, misnotkun fjölmiðla og launráð er hluti af hversdagslífi stjórnmálamanna. Bókin er sú fyrsta í þríleik sem stundum er kenndur við Christianborg, þing þeirra Dana.

Margir telja að fyrirmynd atburða í bókinni megi finna í sögu Monu Sahlin, fyrrv. aðstoðarforsætisráðherra Svíþjóðar, sem var neydd til að segja af sér í kjölfar mikillar og óvæginnar fjölmiðlaherferðar sem pólitískir andstæðingar og óvildarmenn stóðu á bak við. Höfundurinn  Hanne-Vibeke Holst hefur viðurkennt að líf Sahlin sé ákveðin fyrirmynd aðalpersónunnar.

Þegar bókin kom fyrst út gat þáverandi umhverfisráðherra, Siv Friðleifsdóttir, þess líka að hún kannaðist við ótrúlega margt úr sínu stjórnmálalífi í bókinni og kvað Krónprinsessuna stórskemmtilega lesningu.  „Í bókinni er lífi ráðherra lýst á skemmtilegan og sannfærandi hátt, bæði því sem á sér stað opinberlega og bak við tjöldin í vinnunni og ekki síður því sem fram fer heima við,“ sagði Siv í Fréttablaðinu 1. nóvember 2003.

Þegar dönsku framhaldsþættirnir Borgen voru síðan teknir til sýninga hleyptu margir brúnum því þættirnir þykja býsna bíræfin stæling á þríleiknum – ekki síst aðalpersóna þeirra Birgitte Nyborg. Dæmi hver fyrir sig …

INNskráning

Nýskráning