Þessa dagana stöndum við fyrir prakkaraleik Móa á Facebook-veggnum okkar. Eina sem þú þarft að gera að senda okkur sögu og/eða mynd af prakkarastrikum og þá áttu möguleika á að vinna bókina Mói hrekkjusvín – kúreki í Arisóna eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur.
Hér er sigurmynd gærdagsins. Þessi snillingur fékk að horfa á teiknimynd í tölvu foreldris, á meðan viðkomandi snillingur fékk sér skyr.
Við hvetjum alla til að hafa upp á prökkurum og prakkarastrikum og deila þeim á FB vegg Forlagsins.