Gagnrýnandi Fréttablaðsins, Sigurður Hróarsson, er í skýjunum yfir Ljóðasafni Ingibjargar Haraldsdóttur og fjallar ítarlega um verkið í menningarblaði síðustu helgi. Sigurður segir bókina skyldulesning fyrir alla ljóðvini, konur og karlana ekki síst og gefur verkinu fjórar stjörnur. Í dómi sínum skrifar Sigurður meðal annars: „Kennitákn þeirra [fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_1″ background_position=“left top“ background_color=““ border_size=““ border_color=““ border_style=“solid“ spacing=“yes“ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ padding=““ margin_top=“0px“ margin_bottom=“0px“ class=““ id=““ animation_type=““ animation_speed=“0.3″ animation_direction=“left“ hide_on_mobile=“no“ center_content=“no“ min_height=“none“][ljóða Ingibjargar] er skáldlegur þroski; tær og fullsköpuð orðlist sem þó liggur mikið á hjarta. Einkennandi er hversu mögnuð og víðtæk hughrif þau vekja með einföldum orðum og sparsömum brögðum, hversu skír þau eru og einföld (óflókin) en þó ávallt nýmæli; afhjúpa látlaust hið óvænta, valda hugljómun sem í senn er vitræn hrifning og tilfinningaleg …“
[/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]