MMM Matreiðslubók Mörtu Maríu, fékk í dag tilnefningu fyrir hönd Íslands til GOURMAND WORLD COOKBOOK AWARDS 2014.
Það opnar möguleika Mörtu Maríu á að vinna “GOURMAND BEST IN THE WORLD” titilinn sem besta skandinavíska matreiðslubókin.
Sigurvegarinn verður tilkynntur 9. júní í Yantai, í kína.
Við samgleðjumst Mörtu Maríu og óskum henni til hamingju, enda er bókin hennar afskaplega falleg og girnileg.
Í bókinni má finna á annað hundrað heilsusamlegar sælkerauppskriftir (og örfáar sem eru ekki alveg eins hollar en ekki síður æðislegar) að morgunverðarréttum, drykkjum, nesti í skólann og vinnuna, kvöldmat handa fjölskyldunni og veitingum í vinaboðin.
Marta María gefur jafnframt ráð um hollustu, næringu og heilbrigt lífsmynstur og deilir náttúrulegum fegrunar- og slökunarúrræðum sínum. Marta María hefur árum saman fjalla um mat, tísku og mannlíf í ýmsum fjölmiðlum. Hún stýrir nú Smartlandi Mörtu Maríu á mbl.is.
Ljósmyndir í bókinni eru eftir Guðný Hilmarsdóttur.