„Hluti af starfi manns sem höfundar er að takast á við viðfangsefni sem eru á einhvern hátt ögrandi og krefjast einhvers nýs af manni. Og í þessari sögu finnst mér ég vera að takast á við hluti sem ég átti eftir að takast á við. Ég hef til dæmis aldrei áður skrifað bók um sextán ára ungling og það var nýtt fyrir mér að fara þangað og reyna að muna hvernig það var, á hvaða orku maður gengur þegar maður er sextán ára og er að vakna og byrja að spyrja sig spurninga um hvort samfélagið sé nú akkúrat eins og það eigi að vera. Varðandi kanónuna get ég ekkert að því gert þótt einhverjar af bókunum mínum hafi gengið vel og njóti virðingar. Þykir auðvitað bara vænt um það en reyni á sama tíma að endurtaka mig ekki, ögra sjálfum mér og finna nýjar leiðir til að skrifa um eitthvað sem varpar fram nýjum spurningum, ögrar og er í ákveðinni uppreisn.“ Svo mælir rithöfundurinn Sjón í viðtali við Friðriku Benonýsdóttur í Fréttablaðinu um helgina. Skáldsaga hans, Mánasteinn, kemur út á morgun.