Saga Film hefur samið við Gunnar Helgason um að gera sjónvarpsþáttaröð byggða á metsölubókinni Víti í Vestmannaeyjum.
Í þáttunum verður sagt frá æsispennandi ferð Jóns Jónssonar og vina hans í Þrótti á Shell-mótið í Eyjum: móttökum heimamanna, leikjunum sem þeir vinna, leikjunum sem þeir klúðra, sögulegu handleggsbroti, fjallgöngu, sjóferð og sprangi, og síðast en ekki síst Eyjapeyjanum Ívari og erfiðum aðstæðum hans.
Gerðir verða tíu þættir sem hver og einn verður 25 mínútur að lengd. Framleiðsluteymið á bak við þættina er eitt það virtasta og verðlaunaðasta í íslenska sjónvarps- og kvikmyndabransanum og Saga Film er sem kunnugt er stærsta sjálfstæða framleiðslufyrirtæki landsins á sviði sjónvarpsþáttagerðar og kvikmyndagerðar.
Ekki hefur verið ráðið í hlutverk ennþá en ljóst er að ófáir fótboltastrákar munu fá að sýna listir sínar í þáttunum. Skemmtieg hlutverk verða líka í boði fyrir æsta stuðningsmenn og brjálaða foreldra svo það er um að gera að byrja að æfa sig!
Íslensk börn og unglingar mega svo láta sig hlakka til þáttanna sem ætlunin er að verði fullunnir haustið 2014.