Gunnar Helgason

Vinsælasta barnabókin

Aukaspyrna á Akureyri, framhald bókarinnar Víti í Vestmannaeyjum situr nú í efsta sæti á lista yfir mest seldu barnabækurnar og hefur reyndar gert nærri því óslitið frá útgáfu. Bókin er þar að auki í sjötta sæti á aðallista metsölulista íslenskra bókaútgefenda og er eina barnabókin sem kemst á þangað.

Bókin er fyrir alla frá sex ára og upp í 16 ára, en foreldrar hafa líka gaman að sögunni. Í dómi í Fréttablaðinu er sagt að bókin sé ekki bara fyrir fótboltastráka heldur stelpur líka og sé vandlega útskýrð fyrir þá sem lítið vit hafa á boltanum.

Katrín Jónsdóttir, landsliðskona í fótbolta, er búin að lesa bókina og hafði eftirfarandi að segja: „Jón Jónsson að verða unglingur. Það er bara fátt fyndnara en það! Frábær bók fyrir bæði börn og fullorðna og jafnvel að lesa í sameiningu, sérstaklega þegar kemur að seinni hlutanum …“

Stórskemmtileg bók með fótboltastuði, tilfinningaflækjum og fallegri vináttu fyrir alla fótboltakrakka og ekki-fótboltakrakka.

INNskráning

Nýskráning