Jónína Leósdóttir

Merkel fékk fyrsta eintakið

Við fréttum að skemmtilegri bókagjöf á dögunum. Svo var að Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra átti fund með Angelu Merkel, kanslara Þýskalands í liðinni viku. Eins og venja er þegar þjóðarleiðtogar hittast með þessum hætti er skipst á gjöfum en meðal þess sem frú Merkel fékk var fyrsta þýska eintakið af skáldsögu Jónínu Leósdóttur, eiginkonu Jóhönnu, Allt fínt … en þú?

Bókin heitir upp á þýskuna Am Liebsten Gut en hún kemur út í lok ágúst. Raunar var ekki byrjað að prenta upplag bókarinnar þegar óskin barst til Kiwi-forlagsins um að fá eintak til handa Merkel. En með snarræði voru þrjú eintök hennar send með hraðpósti af stað og náðu í tæka tíð.

INNskráning

Nýskráning