Kex Hostel og Sæmundur í sparifötunum eru léttir yfir jólin og munu vera með ljúfa og fallega menningardagskrá allan desembermánuð í samstarfi við Kimi Records og Bókabúð Máls og Menningar. Fjölmargir listamenn munu koma þar fram og skemmta gestum KEX með tónlist, upplestri og gjörningum ýmiskonar.
Í kvöld, þriðjudag 6. desember kl. 20, munu Jakob Frímann Magnússon og Þórunn Erlu-Valdimarsdóttir lesa upp úr ævisögu Jakobs, Með sumt á hreinu. Kvartettinn ADHD stígur einnig á stokk og leikur lög af nýrri plötu sinni, ADHD 2.
Aðgangur að dagskrá KEXMAS 2011 er án endurgjalds og dagskrána er að finna á heimasíðunni www.kexhostel.is.