Meitlaður skáldskapur

Gagnrýnandi Fréttablaðsins lauk lofsorði á ljóðabók Vilborgar Dagbjartsdóttur, Síðdegi, í blaði helgarinnar og gaf bókinni fjórar stjörnur. Rýnirinn Friðrika Benónýsdóttir segir meðal annars: „Að vanda yrkir Vilborg best um óvænta fegurð hins smáa í daglegu lífi, en hér kveður líka við nýjan tón, sorgin og söknuðurinn skipa stóran sess enda bókin tileinkuð minningu Þorgeirs Þorgeirsonar, eiginmanns hennar. Hvergi örlar þó á tilfinningasemi eða uppskrúfuðum lýsingum. Allt er einfalt, meitlað og hittir mann í hjartastað.” Niðurstaða Friðriku er að þarna sé á ferðinni „meitlaður skáldskapur um það sem máli skiptir og að Vilborg sanni þar enn að hún sé meðal merkustu skálda okkar.

INNskráning

Nýskráning