Eins og kunnugt er hafa íslenskar bókmenntir verið í mikilli sókn á mörkuðum víða um heim en þó hefur verið erfitt að komast inn á bandarískan markað. Bandaríkjamenn virðast una glaðir við eigin höfunda og þar í landi er afar lítið þýtt og gefið út af öðrum þjóðtungum og þó einkum og sér í lagi hafa skandinavískar bókmenntir staðið höllum fæti. Það mega því teljast nokkur tíðindi að nýlega náðust samningar milli Forlagsins og New American Press um að gefa út smásagnasafn Ólafs Gunnarssonar; Meistaraverkið og fleiri sögur. Bókin mun koma út haustið 2013 og ætlar New American Press að standa veglega að kynningunni.
Forlagið óskar Ólafi Gunnarssyni innilega til hamingju með þennan árangur!