Davíð K. Gestsson birti í fyrradag athyglisverða og afar loflega umsögn um Hálendið eftir Steinar Braga á vefsíðunni bokmenntir.is. Hann segir þar að þetta sé hryllingssaga sem risti djúpt, hvöss gagnrýni á hugmyndafræði kapítalismans og kynjapólitískt verk eins og Konur, næsta skáldsaga Steinars Braga á undan Hálendinu, en ennþá betri. Í lok ítarlegrar greiningar á verkinu segir hann: „Steinar Bragi býr yfir meistaralegum tökum á skáldskapnum og hefur ítrekað sýnt fram á einstakt lag við að vekja með lesendum djúpan beyg og næstum líkamleg ónot með textann að vopni. Óhugnaðurinn sem hann magnar upp í Hálendinu er slíkur að undirrituðum varð um og ó, en þetta er engu að síður aðgengilegasta verk hans til þessa – sannkallaður „blaðaflettir“. Það er lítið hægt að finna að Hálendinu. Þetta er úthugsað verk, mögulega um of, en ungæðishátturinn og heillandi tilraunagleðin sem einkenndi svo mjög skáldsögur Steinars Braga fram að Konum hefur nú slípast í hárbeittan odd.“