Íslenskir lesendur elska Jo Nesbø! Nýja bókin hans, Meira blóð, hefur nú setið í þrjár viku samfellt á toppi metsölulista Eymundsson og fylgir eftir vinsældum Blóð í snjónum sem sat þar svo vikum skipti fyrir jól.
Gagnrýnendur virðast sömuleiðis hrifnir af Meira blóð en Steinþór Guðbjartsson hjá Morgunblaðinu skrifaði nýlega fjögurra stjörnu dóm um bókina þar sem hann sagði meðal annars:
„Bráðskemmtileg bók, spennandi og með léttu ívafi. Þótt léttleikinn sé alltumlykjandi, minni jafnvel á ævintýri Münchhausens baróns á stundum, er alvaran aldrei langt undan og jafnvel örlar siðferðislegum tóni. Frábær saga og mikill kostur hvað hún er stutt.“
Sagan segir frá manni sem kemur í eyðilegt þorp nyrst í Noregi bjarta síðsumarsnótt árið 1977. Hann segist heita Úlfur og ætla á veiðar en smám saman kemur í ljós að sjálfur er hann bráðin og veiðimennirnir, eiturlyfjasalar frá Osló, ekki langt undan. Þorpsbúar eru flestir í sértrúarsöfnuði, mótaðir af einangrun og harðri lífsbaráttu á hjara veraldar, og Úlfur á ekki annarra kosta völ en að flétta örlög sín saman við þeirra með kostulegum afleiðingum.