Jussi Adler-Olsen

Með sex bækur á topp tíu

Fréttablaðið ræddi á dögunum við Egil Örn Jóhannsson framkvæmdastjóra um fyrstu bók danska metsöluhöfundarins Jussi Adler-Olsen sem væntanleg er í íslenskri þýðingu.

„Á næstu vikum kemur fyrsta bók danska spennusagnahöfundarins Jussi Adler-Olsen, Konan í búrinu, út á íslensku. Adler-Olsen þessi hefur notið fáheyrðra vinsælda í Danmörku síðustu misseri. Til marks um það voru allar sex bækur hans á topp tíu danska bókalistans eina vikuna í janúar en undanfarið hafa að jafnaði þrjár bóka hans átt fast sæti þar. Þó er ekki nema rúmt ár síðan hann sló rækilega í gegn.
„Þetta er mest seldi höfundur Dana í dag eins og sést á topplistum þar í landi,” segir Egill, hæstánægður með að hafa landað höfundinum. Egill hitti Adler-Olsen einmitt á bókamessunni í Frankfurt síðasta haust. „Hann setti sig bara í samband við mig, maður var hálf „starstruck”. Við áttum þarna ágætis spjall og hann hefur mikinn áhuga á landi og þjóð. Hann hefur mikinn áhuga á að koma til Íslands, bæði til að skoða landið og skrifa að ég held.”
Aðspurður segir Egill að fyrsta bók Adler-Olsens komi vonandi út síðar í þessum mánuði. Hinar fimm verði svo gefnar út „rösklega” á næstunni. Þá eiga spennusagnaunnendur von á nýjum bókum frá James Patterson, Lee Child, Ásu Larsson og fleirum.”

INNskráning

Nýskráning