Fyrsta bókin um músina knáu, Maxímús Músíkús heimsækir hljómsveitina, kom nýlega út á ensku, bæði á prenti og sem rafbók. Áður hefur bókin komið út í Kóreu, Þýskalandi, Færeyjum, Ástralíu og bráðum Kína en með þessari útgáfu á ensku er bókin komin í alþjóða dreifingu og auðvelt fyrir börn og foreldra úti um allan heim að nálgast söguna um þessa músíkölsku mús.
Í haust kom ný bók út um Maxa en sú saga gerist í Hörpu og þar er Maxi að bjarga ballettsýningu.