Maturinn hennar Nönnu kom fyrst út árið 2009 bókin en það sem helst einkennir bókina er að hún hefur nýtni matvæla að leiðarljósi. Uppskriftirnar eru miðaðar að því nýta megi afganga og hráefni sem eiga það til að daga uppi í hillum og ísskápum landsmanna. Matarsóun hefur verið mikið í umræðunni og er þetta framlag frá matmóður okkar Íslendinga kærkomin aðstoð fyrir þá sem vantar góðar hugmyndir og ráð í eldhúsinu.
Nanna gefur hér upppskriftir að einföldum mat af því tagi sem hún eldar sjálf handa sínu fólki, réttum sem hægt er að breyta á ýmsa vegu, eftir smekk og fjárhag hvers og eins eða bara eftir því hvað er í skápunum hverju sinni. Einnig kemur hún með tillögur að meðlæti og útskýrir hvort og hvernig má aðlaga uppskriftina svo að hún henti fyrir einn. Hverjum rétti fylgja líka nokkrar hugmyndir um hvað gera megi úr afgöngum.
Nanna tekur jafnframt fyrir eitt hráefni úr hverri uppskrift – krukkusósu, krydd eða annað – og setur fram fjölda hugmynda og ábendinga um nýtingu þess. Þetta gerir bókina margfalt notadrýgri en hefðbundnar matreiðslubækur – áherslan er á að njóta og nýta, að borða vel án þess að kosta miklu til.
Nanna Rögnvaldardóttir er alþekkt fyrir stórvirki sín, Matarást og Matreiðslubók Nönnu, en hin fyrrnefnda var tilnefnd til Íslensku bókmenntaverðlaunanna og sú síðari er biblía á fjölmörgum heimilum. Hún hefur samið nokkrar aðrar matreiðslubækur á íslensku og ensku og skrifað um mat og matargerð í fjölda blaða og tímarita.
Bókin er einstaklega eiguleg og falleg prýdd glæsilegum ljósmyndum Gísla Egils Hrafnssonar en Alexandra Buhl sá um útlit og hönnun.
Bókin er tilnefnd til Gourmet World Cookbook Awards 2009 í tveimur flokkum, Best Innovative Cookbook og Best Cookbook Illustrations.