Marc Jacobs taskan flýgur norður í vikunni

Fyrir helgi var dreginn út vinningshafi í Handtöskuseríunni. Vinningurinn var ekki af verri endanum, geggjuð Marc Jacobs taska úr sumarlínu hönnuðarins og seðlaveski úr klassísku línu Marc Jacobs að verðmæti samtals 110.000 kr. Sú heppna heitir Ellý Dröfn Kristjánsdóttir, frá Akureyri, og hlakkar mikið til að fá töskuna sína senda til sín. Við erum kampakát með þátttökuna og þökkum kærlega fyrir okkur. Handtöskuserían er frábær bókaklúbbur  með áherslu á konur. Sex sinnum á ári fá áskrifendur senda nýja kilju undir þeim formerkjum að höfundur sé kona og  og að verkið fjalli með einhverjum hætti um konur. Nýjasta útsending klúbbsins var bókin Flekkuð eftir Ceciliu Samartin, mögnuð og grípandi skáldsaga um litríkar persónur, ást, vináttu og þor, draumóra og kaldan veruleika – sveipuð ómótstæðilegum suðuramerískum sagnatöfrum.

Til hamingju Ellý Dröfn, hlökkum til að fá mynd af þér með töskuna og vonum að þú njótir þess að spóka þig um með eintak af bókinni Flekkuð í fögru töskunni þinni.

INNskráning

Nýskráning