Mánasteinn á fullveldisdaginn

Sögusvið skáldsögunnar Mánasteinn eftir Sjón er Reykjavík árið 1918. Sögutíminn er akkúrat árstíminn nú, rökkrið í nóvember og desember. Því er vel við hæfi að fagna Mánasteini í Þjóðmenningarhúsinu á fullveldisdaginn, 1. desember. Þar verður lesið úr bókinni, spjallað um heima og geima fortíðar og nútíðar, flutt tónlist og sýnd stutt kvikmynd. Veitingarnar verða síðan af þjóðlega taginu. Verið velkomin í Þjóðmenningarhúsið á sunnudaginn kl. 15.

INNskráning

Nýskráning