Ólafur Jóhann Ólafsson

Málverkið lofað!

Málverkið eftir Ólaf Jóhann Ólafsson hefur verið lofað í hástert af gagnrýnendum. Í dag fékk skáldverkið fimm stjörnur frá Páli Baldvini Baldvinssyni í Fréttatímanum sem segir meðal annars að Málverkið sé „stórbrotið skáldverk þar sem pakkað er saman miklum örlögum.“ Páll Baldvin er fullviss um að bókin muni falla stórum hóp aðdáenda Ólafs vel í geð enda sé Ólafur Jóhann „flinkur að spinna þráð sem er fagurfræðilega fullnægjandi, hlaðinn spennu og rómans …“

Fleiri hafa dásamað skáldverkið og þar á meðal Kolbrún Bergþórsdóttir sem fullyrti í Kiljunni á dögunum að Málverkið væri besta bók Ólafs Jóhanns. Ennfremur gaf Anna Lilja Þórisdóttir hjá Morgunblaðinu bókinni fjórar stjörnur og segir um efnivið bókarinnar að „undir fáguðu og tandurhreinu yfirborði [fusion_builder_container hundred_percent=“yes“ overflow=“visible“][fusion_builder_row][fusion_builder_column type=“1_1″ background_position=“left top“ background_color=““ border_size=““ border_color=““ border_style=“solid“ spacing=“yes“ background_image=““ background_repeat=“no-repeat“ padding=““ margin_top=“0px“ margin_bottom=“0px“ class=““ id=““ animation_type=““ animation_speed=“0.3″ animation_direction=“left“ hide_on_mobile=“no“ center_content=“no“ min_height=“none“][kraumi] heit ást, afbrýði, hatur og hefnd.“ Þórunn Hrefna, gagnrýnandi Fréttablaðsins, gefur bókinni fjórar stjörnur og kemst að eftirfarandi niðurstöðu í dómi sínum: „Eftirminnileg saga, svo vel unnin og fallega saman sett að það er hreinlega aðdáunarvert.“

Sannkölluð örlagasaga hér á ferð sem hægt er að sökkva sér í yfir jólin.


[/fusion_builder_column][/fusion_builder_row][/fusion_builder_container]

INNskráning

Nýskráning