Ólafur Gunnarsson

Málarinn fær fjórar stjörnur

Kristján Hrafn Guðmundsson skrifar afar loflegan ritdóm um nýja skáldsögu Ólafs Gunnarsson, Málarinn, í DV í dag. Hann greinir söguna af glöggskyggni og segir m.a.: „Saga Ólafs gerist um miðjan níunda áratuginn og fléttar hann eitt stærsta þjóðfélagsmál þess tíma, Hafskipsmálið, inn í atburðarásina. Ferst honum það ansi vel úr hendi, sama og sagt verður um fléttu sögunnar heild.

Nokkur reyfarabragur er á sögunni (glæpir af ýmsum toga, morð, ofbeldi, falsanir, innbrot, löggur og lögfræðingar, fangelsi og geðdeild, svik og flótti) og má segja að hún dansi á mörkum fagurbókmennta og spennusögu. Sem er einmitt vel til fundið í ljósi umfjöllunarefnisins, vangaveltan um hvað geri list að list, hvar séu mörkin milli listaverks sem hefur eitthvað gildi og verks sem er stimplað sem söluvara eða einnota. Davíð segir á fleiri en einum stað að hann hafi látið af sínum eigin listrænu kröfum og hreinlega málað viljandi undir getu til að selja verkin sín, til að framfleyta fjölskyldunni. Höfundurinn setur þannig einnig fram spurningar á borð við hvort þannig sé málum háttað hjá einhverjum listamönnum, hvort viljandi sé unnið „undir getu“ til að eiga fyrir salti í grautinn.“

Í lokin segir Kristján Hrafn: **** „Ólafur stefnir … á flottan hátt saman hinu stöðuga og hinu fljótandi lífi Davíðs, þegar allt fer á flot upplifir listmálarinn jafnvel enga stoð í þeim sem áður voru hans stoð og stytta. Listin verður hans eina litla sker í lífsins ólgusjó, því lífið er ekki eins og konfektkassi.“

INNskráning

Nýskráning